Aftökur í 18 löndum

Amnesty International berst gegn dauðarefsingum.
Amnesty International berst gegn dauðarefsingum. AFP

Sam­kvæmt ár­legri skýrslu Am­nesty In­ternati­onal um dauðarefs­ing­ar kom kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn ekki í veg fyr­ir af­tök­ur í 18 lönd­um árið 2020. Þrátt fyr­ir fækk­un á heimsvísu voru nokk­ur lönd sem fjölguðu jafn­vel af­tök­um. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Am­nesty In­ternati­onal á Íslandi.

Í Egyptalandi voru af­tök­urn­ar þre­falt fleiri í fyrra en árið á und­an og kín­versk yf­ir­völd boðuðu að dauðrefs­ing­um yrði beitt gegn brot­um á sótt­varn­a­regl­um. Vitað er um einn karl­mann sem var dæmd­ur til dauða og tek­inn af lífi í kjöl­farið vegna þessa þar í landi.

Rík­is­stjórn þáver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, Don­alds Trumps, hóf á ný af­tök­ur á föng­um í fang­els­um á veg­um al­rík­is­ins eft­ir 17 ára hlé og tók af lífi tíu ein­stak­linga á inn­an við hálfu ári. Ind­land, Óman, Kat­ar og Taív­an hófu einnig af­tök­ur á ný sam­kvæmt því sem kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu.

Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
Agnès Callam­ard, aðal­fram­kvæmda­stjóri Am­nesty In­ternati­onal. AFP

„Dauðarefs­ing­in er grimmi­leg refs­ing og af­tök­ur í miðjum heims­far­aldri sýna enn frek­ar hversu grimmi­leg hún er. Að berj­ast gegn af­töku er erfitt á venju­leg­um tím­um en fang­ar á dauðadeild áttu erfitt með að fá lög­fræðilega aðstoð á staðnum og þeir lög­fræðing­ar sem voru til­bún­ir til þess þurftu óhjá­kvæmi­lega að setja heilsu sína í hættu. Beit­ing dauðarefs­ing­ar­inn­ar við þess­ar aðstæður er ein­stak­lega sví­v­irðileg árás á mann­rétt­indi,“ seg­ir Agnès Callam­ard, aðal­fram­kvæmda­stjóri Am­nesty In­ternati­onal, í frétta­til­kynn­ing­unni. 

Þar seg­ir jafn­framt að tak­mark­an­ir í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um skerti lög­fræðilega aðstoð og rétt­inn til sann­gjarnra rétt­ar­halda í nokkr­um lönd­um, þar á meðal í Banda­ríkj­un­um þar sem verj­end­ur sögðust ekki geta unnið mik­il­væga rann­sókn­ar­vinnu eða hitt skjól­stæðinga sína í eig­in per­sónu.

Kína er und­an­skilið í töl­um Am­nesty In­ternati­onal um fjölda af­taka á heimsvísu þar sem fjölda af­taka og dauðadóma er haldið leynd­um á þeim for­send­um að upp­lýs­ing­arn­ar séu rík­is­leynd­ar­mál.

Kína trón­ir þó enn og aft­ur á toppn­um með flest­ar af­tök­ur í heim­in­um þar sem áætlað er að þær séu í þúsunda­tali. Næst á eft­ir koma Íran, Egypta­land, Írak og Sádi-Ar­ab­ía en í þess­um fjór­um lönd­um voru 88% af öll­um staðfest­um af­tök­um í heim­in­um árið 2020.

Að minnsta kosti 23 fang­ar sem voru tekn­ir af lífi í Egyptalandi voru dæmd­ir til dauða fyr­ir póli­tískt of­beldi í kjöl­far veru­legra ósann­gjarnra rétt­ar­halda og þvingaðra „játn­inga“ auk annarra mann­rétt­inda­brota. Flest­ar af­tök­ur fóru fram í októ­ber og nóv­em­ber þegar egypsk stjórn­völd tóku af lífi að minnsta kosti 57 ein­stak­linga, 53 karl­menn og fjór­ar kon­ur. 

Í Íran hef­ur fjöldi af­taka farið lækk­andi á milli ára þó að dauðarefs­ing­unni sé beitt í aukn­um mæli sem póli­tísku vopni gegn gagn­rýn­end­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar, mót­mæl­end­um og minni­hluta­hóp­um þrátt fyr­ir að það brjóti gegn alþjóðleg­um lög­um.

Sam­kvæmt alþjóðalög­um og stöðlum er bannað að beita dauðarefs­ing­unni fyr­ir glæpi sem tengj­ast ekki morði af yf­ir­lögðu ráði. Enn og aft­ur var brotið gegn þess­um alþjóðalög­um í Asíu og á Kyrra­hafs­svæðinu að því er seg­ir í til­kynn­ing­unni. Dauðarefs­ing­unni var beitt fyr­ir brot í tengsl­um við vímu­efni í Kína, Indó­nes­íu, Laos, Malas­íu, Singa­púr, Sri Lanka, Taílandi og Víet­nam. Fyr­ir spill­ingu í Kína og Víet­nam og fyr­ir guðlast í Pak­ist­an.

Banda­rík­in voru eina landið í Norður- og Suður-Am­er­íku þar sem af­tök­ur fóru fram árið 2020. „Árið 2020 fóru fram að minnsta kosti 483 af­tök­ur í heim­in­um (fyr­ir utan lönd sem telja þess­ar upp­lýs­ing­ar vera rík­is­leynd­ar­mál eða skort­ur er á upp­lýs­ing­um, í Kína, Norður-Kór­eu, Sýr­landi og Víet­nam).

Þetta er minnsti fjöldi af­taka sem skráður hef­ur verið af Am­nesty In­ternati­onal í ára­tug. Þetta er 26% fækk­un frá ár­inu 2019 og 70% fækk­un frá ár­inu 2015 þegar fjöld­inn var með hæsta móti, sam­tals 1.634 af­tök­ur.

Sam­kvæmt skýrslu Am­nesty In­ternati­onal má rekja fækk­un­ina til fækk­un­ar af­taka í nokkr­um lönd­um og frest­un­ar á af­tök­um vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins,“ seg­ir í til­kynn­ingu.

Í Sádi-Ar­ab­íu fækkaði af­tök­um um 85%, úr 184 árið 2019 niður í 27 árið 2020. Í Írak fækkaði þeim um rúm­an helm­ing en þær voru 100 árið 2019 og 45 árið 2020. Eng­ar af­tök­ur fóru fram í Barein, Hvíta-Rússlandi, Jap­an, Pak­ist­an, Singa­púr og Súd­an eins og árið 2019.

Dauðadóm­um, sem voru 1.477 tals­ins árið 2020, fækkaði um 36% á heimsvísu frá ár­inu 2019. Fækk­un var í 30 af 54 lönd­um sem vitað er að hafa kveðið upp dauðadóma á ár­inu 2020. Það virðist tengj­ast töf­um á málsmeðferð í tengsl­um við kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn.

Þó voru nokkr­ar und­an­tekn­ing­ar þar á. Í Indó­nes­íu fjölgaði dauðadóm­um um 46% á milli ára, úr 80 í 117. Í Sam­b­íu voru kveðnir upp 119 dauðadóm­ar sem voru 18 fleiri en árið á und­an og mesti fjöld­inn í Afr­íku sunn­an Sa­hara.

„Í apríl 2021 hafa 108 lönd af­numið dauðarefs­ing­una fyr­ir alla glæpi og 144 lönd hafa af­numið hana í lög­um eða fram­kvæmd. Í Tsjad og Col­orado-ríki í Banda­ríkj­un­um var dauðarefs­ing­in af­num­in á ár­inu 2020. Kasakst­an skuld­batt sig einnig til að af­nema dauðarefs­ing­una og Barbados af­nam end­an­lega lög­boðna dauðarefs­ingu.

Þrátt fyr­ir að sum­ar rík­is­stjórn­ir héldu áfram að beita dauðarefs­ing­unni var heild­ar­mynd­in fyr­ir 2020 já­kvæð. Tsjad af­nam dauðarefs­ing­una ásamt Col­orado-ríki og fjölda af­taka fer fækk­andi. Heims­byggðin er enn nær því að þessi grimmi­lega, ómannúðlega og niður­lægj­andi refs­ing heyri sög­unni til,“ seg­ir Agnès Callam­ard í frétta­til­kynn­ing­unni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert