Engin aftökusveit lengir líf fanga

Fangarnir áttu að vera teknir af lífi í þessum mánuði.
Fangarnir áttu að vera teknir af lífi í þessum mánuði. AFP

Hæstirétt­ur í banda­ríska rík­inu Suður-Karólínu hef­ur frestað tveim­ur af­tök­um þar til fang­arn­ir geta valið á milli þess að verða tekn­ir af lífi í raf­magns­stól eða af af­töku­sveit.

Sam­kvæmt nýj­um lög­um mega fang­ar á dauðadeild velja á milli tveggja dauðdaga ef ban­væn sprauta er ekki mögu­leg.

Vegna þess að fang­els­is­yf­ir­völd hafa ekki enn ráðið af­töku­sveit til starfa var af­tök­un­um frestað af dóm­stóln­um, að því er BBC greindi frá. 

Fang­ana Brad Sig­mon og Freddie Owens átti að taka af lífi í þess­um mánuði. Þeim var neitað um ban­væna sprautu vegna þess að fang­els­is­yf­ir­völd eiga lyf­in ekki til. 

Vegna langvar­andi lyfja­skorts eru kom­in tíu ár síðan fang­ar voru síðast tekn­ir af lífi með ban­vænni sprautu í rík­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert