„Full hefndartilfinningu, hatri, reiði og ótta“

Minnisvarði var reistur í Hollandi til minningar um þá sem …
Minnisvarði var reistur í Hollandi til minningar um þá sem létust í slysinu. AFP

Fjöl­skyld­ur þeirra 298 sem lét­ust þegar farþegaþota Malaysia Air­lines, flug MH17, var skot­in niður árið 2014 yfir Úkraínu, krefjast rétt­læt­is frá Rússlandi. Rétt­ar­höld standa nú yfir í Hollandi í máli þeirra fjög­urra sem eru ákærðir fyr­ir að bera ábyrgð á ódæðinu, þar af eru þrír Rúss­ar.

Vél­in var á leið frá Amster­dam til Kuala Lump­ur í júlí 2014 og voru því tveir þriðju hinna látnu Hol­lend­ing­ar. 

Fólk sem sem missti ætt­ingja í slys­inu segj­ast ekki geta kvatt ást­vini sína fyrr en þeir sem bera ábyrgð verði sótt­ir til saka. 

Alþjóðlegt teymi rann­sak­enda kom­st að þeirri niður­stöðu að Rúss­arn­ir Igor Girk­in, Ser­gey Dubin­skíj og Oleg Pu­latov auk Úkraínu­manns­ins Leonid Kharchen­ko, beri ábyrgð á því að BUK Tel­ar-flug­skeytið sem grandaði flug­vél­inni hafi verið flutt yfir landa­mæri Rúss­lands til Úkraínu. Rúss­nesk yf­ir­völd hafa neitað því frá upp­hafi að vera viðriðin árás­ina. 

„Ég er full hefnd­ar­til­finn­inga, hatri, reiði og ótta,“ sagði Ria van der Steen en hún missti föður sinn og stjúp­móður í slys­inu. Van der Steen var fyrst til að bera vitni í rétt­ar­höld­un­um.

„Ég veit að þau eru dáin og að ég mun ekki sjá þau aft­ur, en ég get ekki bundið enda á sorg­ar­ferlið fyrr en þeir sem bera ábyrgð á dauða þeirra verða fund­ir sek­ir fyr­ir það sem þeir hafa gert.“

90 ætt­ingj­ar bera vitni

Úkraína og Rúss­land hafa neitað að fram­selja hina ákærðu og því eru þeir ekki viðstadd­ir rétt­ar­höld­in. Ein­ung­is Rúss­inn Pu­latov hef­ur lög­mann sem er viðstadd­ur rétt­ar­höld­in.

Vanessa Rizk missti báða for­eldra sína í flug­slys­inu, hún sagði þá ákærðu eiga skilið refs­ingu fyr­ir „viðbjóðslega glæpi þeirra“. Þá kallaði hún eft­ir að Vla­dímír Pútín, Rúss­lands­for­seti svaraði fyr­ir glæp­ina.

Gert er ráð fyr­ir að um 90 ætt­ingj­ar muni bera vitni fyr­ir hol­lenska dóm­stóln­um á næstu dög­um. Dóm­ur í mál­inu verður kveðinn upp eft­ir ár.

Frétt á vef The Guar­di­an.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert