Níu ára lést eftir öngþveiti á tónleikum

Fólk minnist hinna látnu.
Fólk minnist hinna látnu. AFP

Níu ára drengur lést um helgina vegna áverka sem hann hlaut á tón­leik­um á Astroworld-tón­leika­hátíðinni í Hou­st­on á föstu­dag fyrir rúmri viku. Hann hafði verið í dái eftir að hafa troðist undir í öngþveiti við sviðið þar sem rapparinn Travis Scott stóð í miðjum flutn­ingi.

Drengurinn, Ezra Blount, er yngsti af tíu sem hafa látist eftir að troðningur braust út á tónleikunum en ofsa­hræðsla braust út þegar mann­fjöld­inn þrýsti sér fram­ar að sviðinu.

Auk þeirra sem létust þurftu á þriðja hundrað að leita sér læknisaðstoðar.

AFP

Faðir Blounts sagðist hafa farið með drenginn á tónleikana vegna þess að hann var mikill aðdáandi Scotts.

Lögregla rannsakar hvað fór úrskeiðis en alls hafa 90 manns lögsótt tónleikahaldarana.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert