Sagði af sér í kjölfar mannfalls í mótmælum

Fyrrverandi forsætisráðherra Súdan, Abdalla Hamdok.
Fyrrverandi forsætisráðherra Súdan, Abdalla Hamdok. AFP

Abdalla Hamdok, for­sæt­is­ráðherra Súd­an, hef­ur sagt af sér eft­ir að ör­ygg­is­sveit­ir myrtu þrjá mót­mæl­end­ur í dag.

Mót­mæl­end­urn­ir voru að mót­mæla her­for­ingja­stjórn lands­ins. Á vef CCN er greint frá því að tveir voru skotn­ir í bring­una og þriðji lést úr höfuðáverk­um. 

Þrír létust í mótmælunum í dag.
Þrír lét­ust í mót­mæl­un­um í dag. AFP

Í októ­ber lýsti Abdel Fattah al-Bur­h­an, yf­ir­hers­höfðingi og forsprakki vald­aráns­ins, yfir neyðarástandi í Súd­an og steypti rík­is­stjórn­inni af stóli. Hamdok hafði verið í stofufang­elsi síðan en mik­il mót­mæli brut­ust út eft­ir vald­aránið. 

Í lok nóv­em­ber komust al-Bur­h­an og Hamdok síðan að þeirri niður­stöðu að Hamdok tæki aft­ur við stjórn lands­ins. 

Þúsund­ir mót­mæltu hins veg­ar þeirri niður­stöðu og litl­um ár­angri rík­is­stjórn­ar Hamdok sem her­inn held­ur í helj­ar­greip­um. 

Mótmæli í höfuðborginni Khartoum.
Mót­mæli í höfuðborg­inni Khartoum. AFP

Að minnsta kosti 57 hafa lát­ist í mót­mæl­um síðan Hamdok tók aft­ur við stjórn í nóv­em­ber.

„Ég hef reynt að gera mitt besta í að koma í veg fyr­ir að landið verði fyr­ir hörm­ung­um,“ sagði Harmdok í sjón­varps­ávarpi nokkr­um klukku­stund­um eft­ir mót­mæl­in. Þá sagði hann Súd­an vera á hættu­leg­um tíma­mót­um. 

Hama­dok er menntaður viðskipta­fræðing­ur og hef­ur unnið fyr­ir Sam­einuðu þjóðirn­ar og ýmis sam­tök í Afr­íku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert