Almaty eins og draugabær

00:00
00:00

Kassym-Jom­art Tokayev, for­seti Kasakst­an, hafnaði mála­miðlun­um við mót­mæl­end­ur í land­inu í ávarpi í dag. Óeirðir hafa geisað þar eft­ir mikl­ar verðhækk­an­ir á orku og olíu.

Tokayev lofaði því að tor­tíma vopnuðum mót­mæl­end­um og veitti lög­reglu og hern­um heim­ild til þess að skjóta án viðvör­un­ar.

Í ávarp­inu í dag þakkaði Tokayev Rússlandi og sér­stak­lega for­set­an­um Vla­dimír Pútín fyr­ir að senda rúss­nesk­ar her­sveit­ir til lands­ins, til þess að hjálpa við að bæla niður óeirðirn­ar.

Vopnað lög­reglulið og her­sveit­ir lokuðu stór­um hlut­um Almaty, stærstu borg Kasakst­an og þunga­miðju mót­mæl­anna, í dag og skutu viðvör­un­ar­skot­um í loftið ef ein­hver nálgaðist það.

Ætlar ekki að semja við „hryðju­verka­menn“

Borg­in var eins og drauga­bær og öll­um bönk­um, mat­vöru­búðum og veit­inga­stöðum lokað. Þær búðir sem voru opn­ar urðu fljótt uppiskroppa með mat.

Tokayev lýsti því yfir að regla væri nán­ast kom­in um allt landið eft­ir mikl­ar óeirðir um allt Kasakst­an í vik­unni.

Einnig lýsti hann því yfir að þrýst­ing­ur alþjóðasam­fé­lags­ins um það að semja við mót­mæl­end­ur væri rugl og að ekki væri sniðugt að semja við hryðju­verka­menn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert