Dómari hafnaði kröfu Andrésar um frávísun

Einkamáli Virginíu Giuffre gegn Andrew bretaprins verður ekki vísað frá.
Einkamáli Virginíu Giuffre gegn Andrew bretaprins verður ekki vísað frá. AFP

Dóm­stóll í Banda­ríkj­un­um hef­ur hafnað beiðni Andrés­ar Bretaprins um að vísa frá einka­máli Virg­in­íu Giuf­fre gegn hon­um. Giuf­fre hef­ur sakað Andrés um að hafa beitt sig kyn­ferðisof­beldi þegar hún var aðeins 17 ára göm­ul.

Þetta kem­ur fram í um­fjöll­un BBC.

Málið teng­ist fjölda ásak­ana um kyn­ferðisof­beldi gegn ung­um stúlk­um í tengsl­um við kyn­ferðis­brota­mann­inn Jef­frey Ep­stein sem á að hafa greitt Giuf­fre hálfa millj­ón banda­ríkja­dala árið 2009 gegn því að hún myndi ekki til­kynna brot gegn henni til lög­reglu.

Lög­fræðing­ar Andrés­ar sögðu fyr­ir dómi að mál­inu ætti að vísa frá með vís­an til samn­ings­ins sem hún gerði við Ep­stein, en dóm­ari í New York úr­sk­urðaði að málið skyldi taka fyr­ir.

Andrés hef­ur ávallt neitað sök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert