Breivik jafn hættulegur og fyrir áratug

Randi Rosenqvist í dómssal.
Randi Rosenqvist í dómssal. AFP

Fjölda­morðing­inn And­ers Behring Brei­vik, sem nú fer fram á reynslu­lausn rúm­um ára­tugi eft­ir að hann framdi fjölda­morð í Nor­egi, er jafn hættu­leg­ur sam­fé­lag­inu og hann var þegar hann framdi voðaverkið. Þetta sagði geðlækn­ir í dómssal í dag.

„Hætt­an á frek­ari of­beld­is­verk­um af hans hálfu hef­ur ekki breyst síðan á ár­un­um 2012 og 2013 þegar ég gerði mitt fyrsta mat á Brei­vik,“ sagði geðlækn­ir­inn, Randi Rosenqvist. Hún hef­ur metið geðrænt ástand Brei­viks nokkr­um sinn­um síðan hann var dæmd­ur. 

Brei­vik var dæmd­ur í 21 árs „for­var­ing“ árið 2012 fyr­ir að hafa myrt 77 í skipu­lögðum árás­um. Það úrræði er ólíkt hefðbundn­um refsi­dómi að því leyti að hægt verður að fram­lengja dóm­inn ótíma­bundið svo lengi sem dóm­ar­ar telji sam­fé­lag­inu enn stafa ógn af hon­um.

Brei­vik hef­ur sagt að hann hafi fjar­lægt sig frá of­beldi og óski lausn­ar nú eft­ir að hafa afplánað stysta mögu­lega dóm sinn, 10 ár. 

Á fyrsta degi þinghaldsins í gær heilsaði Breivik að sið …
Á fyrsta degi þing­halds­ins í gær heilsaði Brei­vik að sið nas­ista. AFP

Narsis­ísk­ur og and­fé­lags­leg­ur

Brei­vik þjá­ist enn af and­fé­lags­leg­um og narsis­ísk­um per­sónu­leikarösk­un­um, að mati Rosenqvist­ar. 

Þann 22. júlí 2011 myrti Brei­vik átta þegar hann sprengdi sprengju sem var um borð í flutn­inga­bíl skammt frá skrif­stof­um norska rík­is­ins í Ósló. Þá skaut hann 69 til bana, mest­megn­is ung­menni í sum­ar­búðum ungliðahreyf­ing­ar Verka­manna­flokks­ins, á eyj­unni Útey. 

Vitn­is­b­urður Rosenqvist­ar er tal­inn afar mik­il­væg­ur þátt­ur í því hvort Brei­vik fái reynslu­lausn eða ekki. Flest­ir sér­fræðing­ar telja afar ólík­legt að hon­um verði sleppt. 

Brei­vik sat ró­leg­ur við þing­haldið í dag en hristi haus­inn nokkr­um sinn­um á meðan Rosenqvist talaði. 

Sagðist ekki geta tryggt að hann myndi ekki brjóta af sér aft­ur

Brei­vik kvartaði yfir því við dóm­inn að farið væri með hann eins og dýr inn­an veggja fang­els­is­ins og að hann fengi ekki nóg sam­band við um­heim­inn. 

Staðreynd­in er sú að Brei­vik hef­ur til umráða þrjá fanga­klefa, aðgang að sjón­varpi með DVD-spil­ara og rit­vél. 

„Ein­hver sem hef­ur verið dæmd­ur fyr­ir glæp get­ur aldrei tryggt að hann muni ekki fremja slíkt aft­ur. Það velt­ur bara á sam­fé­lag­inu og því hvort það gefi hon­um annað tæki­færi eða ekki,“ sagði Brei­vik við dóm­ara í dag þegar hann var beðinn um að sanna að hann væri ekki leng­ur of­beld­is­full­ur.

Beiðni hans um reynslu­lausn hef­ur komið fjöl­skyld­um fórn­ar­lambanna og eft­ir­lif­enda í upp­nám. Hafa þær lýst áhyggj­um sín­um af því að hann myndi nota þing­haldið til þess að koma á fram­færi málstað sín­um. Sá ótti fjöl­skyldn­anna varð að veru­leika þegar Brei­vik heilsaði að nasísk­um sið og hélt langa ræðu um yf­ir­burði hvítra og þjóðern­is­sósí­al­isma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert