Andrés segir að þau Maxwell hafi ekki verið náin

Andrés Bretaprins.
Andrés Bretaprins. AFP

Andrés Bretaprins neit­ar því að hann og Ghislaine Maxwell, sem dæmd hef­ur verið fyr­ir man­sal, hafi verið nán­ir vin­ir. Þetta kem­ur fram í dóms­skjöl­um í máli Virg­iniu Giuf­fre gegn Andrési. Hún sak­ar hann um kyn­ferðis­brot.

BBC grein­ir frá.

Þá segja lög­fræðing­ar Andrés­ar sömu­leiðis að hann vilji koma fyr­ir dóm til þess að mæta þeim ásök­un­um sem Giuf­fre hef­ur sett fram á hend­ur hon­um. 

Frétt af mbl.is

Andrés hef­ur alltaf þver­tekið fyr­ir það að hann hafi brotið á Giuf­fre.

Hún seg­ir að Andrés hafi ráðist á hana þegar hún var 17 ára göm­ul og dvaldi á heim­ili Maxwell og barn­aníðings­ins Jef­frey Ep­stein. 

Myndin sem lögfræðingar Andrésar segjast hvorki geta staðfest né neitað …
Mynd­in sem lög­fræðing­ar Andrés­ar segj­ast hvorki geta staðfest né neitað að sé til. Í for­grunni eru Andrés og Giuf­fre og í bak­sýn má sjá Maxwell. AFP

Í 11 blaðssíðna dóms­skjali sem lagt var fram í gær segja lög­menn Andrés­ar að nokkr­ar ástæður séu fyr­ir því að vísa ætti einka­mál­inu á hend­ur Andrési frá og að frek­ar ætti að tak­ast á um málið frammi fyr­ir dóms­stól­um. Lögmaður Giuf­fre seg­ir kröf­una þýðing­ar­lausa þar sem Giuf­fre hafi nú þegar beðið um slíkt.

Lög­menn­irn­ir Andrés­ar segja að þó hann viður­kenni að hafa hitt Ep­stein árið 1999 þá neiti hann því að hafa tekið þátt í ein­hvers­kon­ar mis­notk­un með hon­um. Sömu­leiðis neit­ar Andrés því að hafa verið ná­inn vin­ur Maxwell. Þá segja þeir að ekki séu til gögn sem sanni eða afsanni það að mynd af Andrési með Giuf­fre og Maxwell sé raun­veru­leg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert