Johnson ræðir við Pútín um Úkraínu

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun ferðast til Austur-Evrópu á næstu …
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun ferðast til Austur-Evrópu á næstu dögum. AFP

Bor­is John­son, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, og Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti munu eiga síma­fund á næstu dög­um áður en John­son mun ferðast til Aust­ur-Evr­ópu til þess að reyna að leysa deil­una við landa­mæri Rúss­lands og Úkraínu.

BBC grein­ir frá því að John­son muni leggja áherslu á að hvetja Rússa til að leysa deil­una á „diplóma­tísk­an hátt“ og „ít­reka að Rúss­ar þurfa að stíga til baka“.

Um hundrað þúsund rúss­nesk­ir her­menn eru nú staðsett­ir á landa­mær­um Úkraínu og Rúss­lands. 

John­son hef­ur áður sagt að hann muni senda her­menn til þess að liðsinna aðild­ar­ríkj­um NATO ef Rúss­ar gera inn­rás inn í Úkraínu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert