Andrés mun bera vitni eiðsvarinn

Andrés Bretaprins.
Andrés Bretaprins. AFP

Andrés Bretaprins mun bera vitni eiðsvar­inn fyr­ir lög­fræðing­um Virg­iniu Giuf­fre í mars en hún höfðar einka­mál gegn hon­um fyr­ir að hafa brotið á henni kyn­ferðis­lega.

Giuf­fre seg­ir að Andrés hafi ráðist á hana þegar hún var 17 ára göm­ul og dvaldi á heim­ili Maxwell og barn­aníðings­ins Jef­frey Ep­stein. 

Andrés mun þurfa að svara spurn­ing­um lög­fræðinga Giuf­fre en hann hef­ur alltaf þver­tekið fyr­ir það að hann hafi brotið á henni. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert