Réttað yfir einum af „Bítlum“ Ríkis íslams

El Shafee Elsheikh.
El Shafee Elsheikh. AFP/Sýrlandsher

Val á kviðdómi hófst í dag í rétt­ar­höld­um yfir meint­um liðsmanni hóps inn­an hryðju­verka­sam­tak­anna Rík­is íslams, þekkt­um sem „Bítl­arn­ir“.

El Shafee Els­heikh, 33 ára, er sakaður um að aðild að morðum á banda­rísku blaðamönn­un­um James Foley og Steven Sotloff, auk hjálp­ar­starfs­mann­anna Peters Kassig og Kayla Mu­ell­er.

Bú­ist er við því að mál­flutn­ing­ur í rétt­ar­höld­un­um hefj­ist á morg­un.

Els­heikh og ann­ars bresk­ur rík­is­borg­ari, Al­ex­anda Amon Kotey, 37 ára, voru hand­tekn­ir í janú­ar 2018 af her­sveit­um Kúrda í Sýr­landi þegar þeir reyndu að flýja til Tyrk­lands.

Þeir voru fram­seld­ir til banda­rískra her­sveita í Írak og þaðan var flogið með þá til Virg­in­íu-rík­is í Banda­ríkj­un­um árið 2020. Þar áttu þeir yfir höfði sér ákær­ur vegna gíslatöku, aðild­ar að morði á banda­rísk­um rík­is­borg­ur­um og fyr­ir stuðning við er­lend hryðju­verka­sam­tök.

Samsett mynd af James Foley, Steven Sotloff, Peter Kassig og …
Sam­sett mynd af James Foley, Steven Sotloff, Peter Kassig og Kayla Mu­ell­er. AFP

Kotey játaði sekt sína árið 2021 og á yfir höfði sér lífstíðarfang­elsi. Sam­kvæmt samn­ingi þarf hann að dúsa í 15 ár í banda­rísku fang­elsi og verður eft­ir það fram­seld­ur til Bret­lands þar sem hann á yfir höfði sér frek­ari ákær­ur. 

Els­heikh ákvað að and­mæla ákær­un­um og rétt­ar­höld­in yfir hon­um fara fram í al­rík­is­dóm­stól í borg­inni Al­ex­andríu í Virg­in­íu.

Pynt­ing­ar og af­höfðanir

Fjög­urra manna hryðju­verka­sella með Kotey og Els­heikh inn­an­borðs var kölluð „Bítl­arn­ir“ af þeim sem voru tekn­ir sem gísl­ar vegna bresks hreims þeirra. Hóp­ur­inn er sakaður um að hafa tekið þátt í ráni á að minnsta kosti 27 manns í Sýr­andi á ár­un­um 2012 til 2015.

„Bítl­arn­ir“ eru sagðir hafa pyntað og myrt fórn­ar­lömb sín, þar á meðal af­höfðað þau, og Ríki íslams birti mynd­bönd af morðunum í áróðurs­skyni.

Leiðtogi hóps­ins, Mohamed Emwazi, þekkt­ur sem „Ji­hadi John“, var drep­inn í dróna­árás Banda­ríkj­anna í Sýr­landi árið 2015. Fjórði „Bít­ill­inn“, Aine Dav­is, sit­ur í fang­elsi í Tyrklandi eft­ir að hafa verið fund­inn sek­ur um hryðju­verk.

Kotey var kallaður „Ringo“ af gísl­un­um á meðan Els­heikh var nefnd­ur „Geor­ge“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert