Erdogan segist styðja Úkraínu

Erdogan og Selenskí í Lvív í Úkraínu í dag.
Erdogan og Selenskí í Lvív í Úkraínu í dag. AFP/Forsætisráðuneyti Tyrklands

Recep Tayyip Er­dog­an, for­seti Tyrk­lands, hef­ur lýst yfir stuðningi sín­um við Úkraínu og var­ar við hættu á „öðru Tsjernó­byl“ stór­slysi.

Rúss­ar hafa tekið að beina sprengj­uárás­um sín­um í átt að Sa­porisjía, en þar er að finna stærsta kjarn­orku­ver Evr­ópu. 

Er­dog­an hitti koll­ega sinn Volodimír Selenskí, og Ant­onio Guter­res, aðal­rit­ara Sam­einuðu þjóðanna, í Lvív í Úkraínu í dag, aðeins tveim­ur vik­um eft­ir að hann fundaði með Vla­dimír Pútín, for­seta Rúss­lands, í Sot­sí í Rússlandi.

Þar lofuðu Er­dog­an og Pútín að styrkja viðskipta­sam­bönd á milli Tyrk­lands og Rúss­lands.

„Á meðan við höld­um áfram að reyna að finna lausn­ir, stönd­um við við hlið úkraínskra vina okk­ar,“ sagði Er­dog­an þó í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert