Fyrrverandi forsetar Panama ákærðir

Mótmæli gegn háu matar- og bensínverði í Panamaborg í sumar.
Mótmæli gegn háu matar- og bensínverði í Panamaborg í sumar. AFP/Rogelio Figueroa

Sak­sókn­ar­ar í Panama hafa ákært for­set­ana fyrr­ver­andi Rich­ar­do Mart­inelli og Juan Car­los Val­era fyr­ir að þvætta pen­inga frá verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Odebr­echt. Áður hafði fyr­ir­tækið viður­kennt að hafa greitt mút­ur í land­inu.

Menn­irn­ir tveir, sem leiddu Panama á ár­un­um 2009 til 2019, mættu ekki í dómsal í gær vegna máls­ins.

Sak­sókn­ar­ar saka þá um að hafa notað lepp­fyr­ir­tæki og er­lenda banka­reikn­inga til að taka á móti pen­ing­um frá Odebr­echt á ár­un­um 2008 til 2014.

Um 50 manns í viðbót tengj­ast ákær­un­um, þar á meðal þó nokkr­ir fyrr­ver­andi ráðherr­ar, að sögn sak­sókn­ara.

Odebr­echt játaði árið 2016 í dómsal í Brook­lyn í Banda­ríkj­un­um að hafa greitt yfir 788 millj­ón­ir dala, eða um 110 millj­arða króna, í mút­ur til emb­ætt­is­manna í rík­is­stjórn­um og stjórn­mála­flokk­um, aðallega í Suður-Am­er­íku, til að tryggja sér verk­taka­samn­inga.

Bras­il­íska fyr­ir­tækið viður­kenndi að hafa greitt 59 millj­ón­ir dala, eða um 8,2 millj­arða króna, í mút­ur í Panama gegn því að fá slíka samn­inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert