Snowden fær rússneskan ríkisborgararétt

Edward Snowden hefur dvalið í Rússlandi síðustu ár, þar sem …
Edward Snowden hefur dvalið í Rússlandi síðustu ár, þar sem hann fékk hæli. AFP

Vla­dimír Pútín, for­seti Rúss­lands, hef­ur veitt upp­ljóstr­ar­an­um Edw­ard Snowd­en rúss­nesk­an rík­is­borg­ara­rétt. Reu­ters grein­ir frá.

Snowd­en, sem er 39 ára, fékk hæli í Rússlandi eft­ir að hann flúði frá Banda­ríkj­un­um eft­ir að hafa ljóstrað upp um ýmis leynigögn banda­rískra stofn­ana árið 2013. Hann var grein­andi hjá banda­rísku þjóðarör­ygg­is­stofn­un­inni (NSA).

Hann á yfir höfði sér ákær­ur fyr­ir glæpi sem gætu varðað allt að 30 ára fang­elsi, yrði hann fund­inn sek­ur. Banda­rísk yf­ir­völd hafa árum sam­an reynt að fá hann fram­seld­an til lands­ins svo hægt sé að rétta yfir hon­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert