Bandaríkin beita Írani refsiaðgerðum

Mótmæli vegna andláts Mahsa Amini hafa verið í Íran en …
Mótmæli vegna andláts Mahsa Amini hafa verið í Íran en líka víðsvegar um allan heim. Hér er verið að sýna samstöðu í Rómarborg. AFP/Filippo Monteforte

Banda­rísk yf­ir­völd hafa beitt sjö ír­anska emb­ætt­is­menn refsiaðgerðum vegna þátt­töku þeirra í of­beld­is­full­um aðgerðum gegn mót­mæl­end­um eft­ir dauðsfall Mahsa Am­ini.

Meðal emb­ætt­is­mann­anna sem banda­rísk yf­ir­völd beita sér gegn eru inn­an­rík­is­ráðherr­ann Eisa Zarepour og fimm hátt­sett­ir lög­gæslu­menn sem báru ábyrgð á því „að loka netaðgangi í Íran vegna upp­reisn­anna og að beita miklu of­beldi í friðsam­leg­um mót­mæl­um,“ að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá fjár­málaráðuneyti Banda­ríkj­anna.

Tug­ir mót­mæl­enda lát­ist í aðgerðum lög­reglu

Aðgerðir stjórn­valda í Íran hafa valdið tug­um dauðsfalla sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá mann­rétt­inda­sam­tök­um. Mót­mæla­alda gekk yfir landið og víðar um heim­inn eft­ir and­lát hinn­ar 22 ára gömlu kúr­dísku Am­ini sem var hand­tek­in af siðferðis­lög­regl­unni fyr­ir að hylja ekki hár sitt nægi­lega með höfuðslæðunni. Lög­regla beitti hana harðræði og lést hún í kjöl­farið.

For­dæma ír­önsk stjórn­völd

„Rétt­ur­inn til að segja hug sinn og að mót­mæla friðsam­lega eru grund­völl­ur sjálf­stæðis og reisn­ar ein­stak­linga,“ skrif­ar aðstoðarráðherr­ann Bri­an Nel­son í til­kynn­ing­unni.

„Banda­rík­in for­dæma ír­önsk stjórn­völd fyr­ir að hafa lokað fyr­ir netaðgang, bælt niður friðsam­leg mót­mæli og ekki síst að fara fram með offorsi gegn þeim sem virðast stjórna mót­mæl­un­um.“

Þeir fimm lög­gæslu­menn sem eru á refsil­ista Banda­ríkja­manna eru Hossein Saj­ed­ina, yf­ir­maður lög­gæsl­unn­ar í Íran, Ya­dollah Javani, yf­ir­maður íslamska bylt­ing­ar­varðliðsins, Va­hid Mohammad NaserMajid, yf­ir­maður vef­lög­reglu Íran, Hossein Nejat, yf­ir­maður í íslamska bylt­ing­ar­varðliðinu og Hossein Rahimi sem sér um að ganga eft­ir því að höfuðslæður séu notaðar í Tehran.

Hamla viðskipta­mögu­leik­um söku­dólganna

Áður höfðu Banda­ríkja­menn beitt refsiaðgerðum gegn siðferðis­lög­regl­unni í Íran eft­ir and­lát Am­ini. Refsiaðgerðirn­ar fel­ast í því að frysta all­ar eign­ir sem viðkom­andi kann að eiga í banda­rískri lög­sögu, þar með talið í alþjóðabönk­um sem hafa viðskipti í Banda­ríkj­un­um. Þannig draga refsiaðgerðir Banda­ríkj­anna veru­lega úr mögu­leik­um þess­ara ein­stak­linga til að eiga viðskipti í gegn­um alþjóðleg­ar stofn­an­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert