Íran: Amini hafi látist af völdum veikinda en ekki ofbeldis

Hjólreiðamaður ferðast framhjá veggmynd til heiðurs Masha Amini í París.
Hjólreiðamaður ferðast framhjá veggmynd til heiðurs Masha Amini í París. AFP/Julien De Rosa

Mahsa Am­ini lést af völd­um veik­inda en ekki högga eða áverka. Þetta kem­ur fram í op­in­berri skýrslu sem var birt í morg­un, þrem­ur vik­um eft­ir að hún lést í haldi ír­önsku lög­regl­unn­ar.

Að sögn ír­önsku rétt­ar­meina­stofn­un­ar­inn­ar „lést Mahsa Am­ini ekki af völd­um högga í höfuðið, mik­il­væg líf­færi eða í út­limi“, seg­ir í skýrsl­unni sem var birt í rík­is­sjón­varpi lands­ins.

Fram kem­ur að dauði henn­ar teng­ist þess í stað „aðgerð vegna heila­æxl­is þegar hún var átta ára“.

Hörð mót­mæli hafa geisað í Íran eft­ir að Am­ini lést í haldi lög­regl­unn­ar. Hún var hand­tek­in fyr­ir að hafa brotið lög um notk­un á höfuðslæðu.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert