Morðtilræði í sendiráði í Kaupmannahöfn

Frá Kaupmannahöfn.
Frá Kaupmannahöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Íransk­ur maður vopnaður hnífi gerði at­lögu að ír­anska sendi­ráðinu í Kaup­manna­höfn fyrr í dag. Örygg­is­verðir sendi­ráðsins yf­ir­buguðu mann­inn og var hann síðar hand­tek­inn af dönsku lög­regl­unni.

Íranska sendi­ráðið sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu í kjöl­farið þar sem danska lög­regl­an er harðlega gagn­rýnd fyr­ir sein viðbrögð og ófull­nægj­andi ör­ygg­is­ráðstaf­an­ir við sendi­ráðið.

Sendi­herra Írans í Kaup­manna­höfn er kona að nafni Afsa­neh Nadipour.

„Það eru mik­il von­brigði að slík árás, sem bein­ist gegn kven­kyns sendi­herra Íran, geti átt sér stað í hjarta Evr­ópu. Einnig eru það mik­il von­brigði hversu lengi lög­regl­an var á vett­vang,“ seg­ir meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni. 

Marg­ir látið lífið

Hörð mót­mæli hafa geisað í Íran síðustu þrjár vik­ur í kjöl­far þess að Mahsa Am­ini, 22 ára kona, lét lífið í haldi siðferðis­lög­regl­unn­ar þar í landi, en hún var hand­tek­in fyr­ir að brjóta gegn regl­um um klæðaburð kvenna í Íran.

Heimsk­ast­ljósið hef­ur beinst að Íran og sam­stöðufund­ir hafa verið haldn­ir víða um heim. Mót­mæl­in þar hafa verið blóðug og fjöldi fólks hef­ur látið lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert