Rússar segja dóminn hneyksli

Flugvélarbrakið.
Flugvélarbrakið. AFP/Dímítar Dílkoff

Hol­lenska ut­an­rík­is­ráðuneytið hef­ur boðað rúss­neska sendi­herr­ann þar í landi á fund eft­ir að rúss­nesk stjórn­völd gagn­rýndu niður­stöðu dóms í máli MH17-farþega­flug­vél­ar­inn­ar sem var grandað yfir Úkraínu árið 2014. 

Rúss­neska ut­an­rík­is­ráðuneytið tel­ur niður­stöðu hol­lenska dóm­stóls­ins póli­tíska og að um hneykslis­mál sé að ræða.

Flug­vél­in sem um ræðir var á leið frá Hollandi til Malas­íu var skot­in niður yfir Úkraínu með þeim af­leiðing­um að all­ir 298 um borð lét­ust.

Tveir Rúss­ar og úkraínsk­ur aðskilnaðarsinni voru sak­felld­ir í gær af hol­lensk­um dóm­stóli en sam­kvæmt niður­stöðu dóms­ins var árás­in gerð vís­vit­andi. Talið er þó að þeir hafi staðið í trú um að þarna hafi úkraínsk herflug­vél verið á ferð.

Menn­irn­ir þrír voru ekki viðstadd­ir upp­kvaðningu dóms­ins og þykir ólík­legt að þeir muni sitja inni fyr­ir glæp­inn. 

Stjórn­völd í Rússlandi hafa virt dóm­inn að vett­ugi og segja hol­lenska dóm­stól­inn hafa verið und­ir for­dæma­laus­um þrýst­ingi frá stjórn­völd­um, sak­sókn­ur­um og fjöl­miðlum.

Ut­an­rík­is­ráðuneytið í Rússlandi sagði í yf­ir­lýs­ingu að rétt­ar­höld­in færu lík­lega í sögu­bæk­urn­ar fyr­ir að vera eitt stærsta hneykslis­mál frá upp­hafi réttar­fars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert