„Það þarf að stöðva ofbeldið“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Annalena Baerbock utanríkisráðherra Þýskalands …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Annalena Baerbock utanríkisráðherra Þýskalands (til vinstri). AFP

„Hug­rekki Írana sem krefjast frels­is og jafn­rétt­is á friðsam­an hátt veit­ir mér inn­blást­ur,“ sagði Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra á auka­fund­i í mann­rétt­indaráði Sam­einuðu þjóðanna sem var hald­in í Genf í Sviss í morg­un. 

Fund­ur­inn var hald­inn að beiðni Íslands og Þýska­lands til þess að fjalla um ástand mann­rétt­inda­mála í Íran í ljósi fram­göngu þarlendra yf­ir­valda gegn friðsöm­um mót­mæl­end­um und­an­farn­ar vik­ur.

Full­trúi Íran í mann­rétt­indaráðinu sagði Ísland og Þýska­land mis­nota stöðu sína í ráðinu með því að kalla til fund­ar­ins.

Þór­dís sagði að mann­rétt­indaráðið yrði að bregðast við mann­rétt­inda­brot­un­um sem ír­önsk stjórn­völd hafa framið. 

„Það þarf að stöðva of­beldið og það þarf að stöðva of­beldið gegn mann­rétt­ind­um kvenna,“ sagði hún og bætti við að ráðið skuldi hug­rökku kon­un­um og stúlk­un­um í Íran að taka skýra af­stöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert