Rekinn fyrir að hafa afgreitt konu sem bar ekki slæðu

Hörð mótmæli hafa geisað í landinu.
Hörð mótmæli hafa geisað í landinu. AFP/Yasin Akgul

Íransk­ur banka­stjóri sem af­greiddi konu sem ekki bar höfuðslæðu var sagt upp störf­um. Sam­kvæmt ír­önsk­um lög­um er kon­um skylt að hylja háls, haus og hár sitt.

Flest­ir bank­ar Írans eru rík­is­rekn­ir. Ahmad Haj­iza­deh vara­héraðsstjóri hef­ur sagt það vera ábyrgð stjórn­enda að lög­um lands­ins sé fylgt.

Hörð mót­mæli gegn klerka­stjórn­ lands­ins hafa geisað í land­inu eft­ir dauða hinn­ar 22 ára gömlu Mahsa Am­ini. Hún lét lífið þrem­ur dög­um eft­ir að hún var hand­tek­in af hinni al­ræmdu siðgæðis­lög­reglu fyr­ir að brjóta íslamsk­ar regl­ur um klæðaburð kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert