Þekktri íranskri leikkonu sleppt úr haldi

Ghaziani hefur nú verið látin laus gegn tryggingu.
Ghaziani hefur nú verið látin laus gegn tryggingu. AFP/Atta Kenare

Þekkt ír­önsk leik­kona, Heng­a­meh Ghazi­ani, hef­ur verið lát­in laus úr haldi lög­reglu gegn trygg­ingu, sam­kvæmt ír­önsk­um fjöl­miðlum. Hún var hand­tek­in fyr­ir rúmri viku fyr­ir styðja op­in­ber­lega mót­mæl­in sem geisað hafa í land­inu síðustu tvo mánuði.

Áður hafði tveim­ur þekkt­um ein­stak­ling­um, sem sýndu sam­stöðu, einnig verið sleppt úr haldi; fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­mann­in­um Voria Ghafouri og aðgerðasinn­an­um Hus­sein Ronag­hi. Þeim var líka sleppt gegn trygg­ingu.

Yf­ir­völd í Íran greindu frá því þann 20. nóv­em­ber síðastliðinn að Ghazi­ani hefði verið tek­in til yf­ir­heyrslu, ásamt sjö öðrum nafn­toguðum ein­stak­ling­um og stjórn­mála­mönn­um, vegna um­mæla sem fólkið hefði látið falla í tengsl­um við mót­mæl­in sem hóf­ust eft­ir að hin 22 ára Mahsa Am­ini lést í haldi í lög­reglu í sept­em­ber. Hún hafði verið hand­tek­in af ír­önsku siðgæðis­lög­regl­unni fyr­ir að brjóta strang­ar regl­ur um klæðaburð kvenna.

Áður en Ghazi­ani var hand­tek­in hafði hún greint frá því að yf­ir­völd væru á eft­ir henni, en í kjöl­farið birti hún mynd­band af sér á In­sta­gram þar sem hún fjar­lægði höfuðslæðu sem kon­um í Íran ber skylda að bera.

„Sýn­ing­unni er lokið“

Fleiri hafa gert slíkt hið sama, en nú hef­ur verið birt mynd­band á sam­fé­lags­miðlum sem sýn­ir hóp ír­anskra leik­ara, bæði kon­ur og karla, fram­kvæma þögul mót­mæli þar sem þau taka niður höfuðslæður, til að sýna sam­stöðu.

Í mynd­band­inu sést leik­kon­ann og leik­stýr­an Soheila Go­lest­ani ganga svart­klædd inn í mynd, snúa sér við og sýna að hún ber ekki slæðu. Níu kon­ur til viðbót­ar gera slíkt hið sama og fimm karl­menn.

Go­lest­ani birti sjálf mynd­bandið á In­sta­gram-síðu sinni í gær. „Sýn­ing­unni er lokið og sann­leik­ur­inn hef­ur verið af­hjúpaður,“ skrifaði hún. „Raun­veru­legu hetj­urn­ar okk­ar er allt óþekkta fólkið.“

Íransk­ar ör­ygg­is­sveit­ir hafa að minnsta kosti drepið 326 manns í aðgerðum sín­um gegn mót­mæl­end­um á síðustu mánuðum, sam­kvæmt Sam­tök­un­um Írönsk mann­rétt­indi (e. Iran Hum­an Rights (IHR)), og þúsund­ir hafa verið hand­tek­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert