Forseti Brasilíu: „fasista ofstækismenn“

Forsetinn fordæmir innrásirnar.
Forsetinn fordæmir innrásirnar. AFP/Evaristo Sa

Luiz Inacio Lula da Silva, for­seti Bras­il­íu, for­dæmd­ir inn­rás stuðnings­manna fyrr­ver­andi for­seta lands­ins, Jair Bol­son­aro, í þing­hús, Hæsta­rétt og for­seta­höll Bras­il­íu. Kall­ar hann árás­ar­menn­ina „fas­ista of­stæk­is­menn“.

Lula tók form­lega við embætti for­seta Bras­il­íu 1. janú­ar, en hann sigraði Bol­son­aro í for­seta­kosn­ing­um í októ­ber.

„Við mun­um kom­ast að því hverj­ir þess­ir skemmd­ar­varg­ar eru,“ sagði Lula og bætti við að þeir yrðu dregn­ir til ábyrgðar.

For­set­inn er nú stadd­ur í borg­inni Ar­araquara í suðaust­ur­hluta Bras­il­íu sem varð illa úti í flóðum fyr­ir tveim­ur vik­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert