Hafa náð að rýma þinghúsið

Enn er unnið að því að rýma hús Hæstaréttar og …
Enn er unnið að því að rýma hús Hæstaréttar og forsetahöllina. AFP/Sergio Lima

Bras­il­ísk­ar ör­ygg­is­sveit­ir hafa komið stuðnings­mönn­um Jair Bol­son­aro, fyrr­ver­andi for­seta lands­ins, úr þing­húsi lands­ins.

Fjöldi stuðnings­manna Bol­son­aro braust inn í þing­húsið, hús Hæsta­rétt­ar lands­ins og for­seta­höll­ina til að mót­mæla embætt­is­töku Luiz Inacio Lula da Silva, en hann tók form­lega við embætti for­seta Bras­il­íu 1. janú­ar.

Enn er unnið að því að rýma hús Hæsta­rétt­ar og for­seta­höll­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert