Fyrrverandi þingkona skotin til bana

Kona horfir á ljósmynd af Mursal Nabizada á símanum sínum.
Kona horfir á ljósmynd af Mursal Nabizada á símanum sínum. AFP/Wakil Kohsar

Byssu­menn skutu til bana fyrr­ver­andi þing­konu og einn af líf­vörðum henn­ar í Kabúl, höfuðborg Af­gan­ist­ans, aðfaranótt sunnu­dags.

Mur­sal Nabizada, sem var 32 ára, var þing­kona þangað til talíban­ar tóku völd­in í land­inu í ág­úst árið 2021.

Að sögn tals­manns lög­regl­unn­ar var hún skot­in til bana heima hjá sér. Bróðir þing­kon­unn­ar særðist einnig í árás­inni.

Nabizada var „ótta­laus bar­áttu­kona fyr­ir Af­gan­ist­an“, sagði þing­kon­an fyrr­ver­andi Mariam Solim­ankhil á Twitter.

„Hún var sterk kona sem stóð fast á sínu jafn­vel þegar hún stóð frammi fyr­ir hættu,“ bætti hún við.

„Þrátt fyr­ir að vera boðið að yf­ir­gefa Af­gan­ist­an ákvað hún að halda kyrru fyr­ir og berj­ast fyr­ir fólkið sitt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert