Senda hótun um málsókn á meint fórnarlömb

Andrew Tate á leið í dómsal fyrr í þessum mánuði …
Andrew Tate á leið í dómsal fyrr í þessum mánuði þar sem hann freisti þess að fá úrskurði um gæsluvarðhald hnekkt. AFP

Um­deildi áhrifa­vald­ur­inn Andrew Tate, sem sit­ur í varðhaldi í Rúm­en­íu vegna gruns um kyn­ferðisof­beldi og man­sal, hef­ur sent að minnsta kosti ein­um meint­um brotaþola bréf þar sem þess er kraf­ist að hann falli frá kær­unni. 

Í bréf­inu, sem var sent fyr­ir hönd Andrews og bróður hans Trist­ans af banda­rískri lög­manns­stofu, er þess kraf­ist að kon­an dragi vitn­is­b­urð sinn til baka ell­egar megi hún eiga von á því að vera stefnt fyr­ir ærumeiðing­ar.

Segja brotaþola fara með rangt mál í fjöl­miðlum

Frétta­stofa BBC hef­ur bréfið und­ir hönd­um en þar seg­ir meðal ann­ars:

„Þú hélst því rang­lega fram í apríl 2022 að skjól­stæðing­ur okk­ar hafi hneppt þig í þræl­dóm og mis­notað þig. Þess­ar röngu staðhæf­ing­ar um Tate bræðurna hef­ur þú end­ur­tekið við lög­reglu, fjöl­miðla og aðra banda­ríska rík­is­borg­ara“.

Sér­fræðing­ur í mál­efn­um kyn­ferðis­brota, sem BBC ræðir við, seg­ir eina til­gang bréfs­ins vera að þagga niður í fórn­ar­lömb­um og tryggja að þau þori ekki að segja frá sinni upp­lif­un. Talsmaður lög­mannstof­unn­ar seg­ir Tate-bræðurna hins veg­ar eiga full­an rétt á því að vernda sína æru þrátt fyr­ir að þeir sitji í varðhaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert