Bolsonaro þarf að svara spurningum lögreglu

Bolsonaro er fyrrverandi forseti Brasilíu.
Bolsonaro er fyrrverandi forseti Brasilíu. AFP/Handout/Frjálslyndi flokkurinn í Brasilíu

Jair Bol­son­aro, fyrr­ver­andi for­seti Bras­il­íu, mun þurfa að sæta yf­ir­heyrslu af lög­reglu vegna inn­rás­ar stuðnings­manna hans í þing­hús Bras­il­íu, Hæsta­rétt Bras­il­íu og for­seta­höll lands­ins í janú­ar.

Hæstirétt­ur Bras­il­íu komst að þess­ari niður­stöðu í dag.

Mót­mæltu embættis­töku Lula

Bol­son­aro mun þurfa að svara fyr­ir þær ásak­an­ir að hann hafi hvatt stuðnings­menn sína til óreiðanna.

Stuðnings­menn hans rudd­ust inn í um­rædd­ar bygg­ing­ar þann 8. janú­ar til að mót­mæla embætt­is­töku Luiz Inacio Lula da Silva, sem Bol­son­aro tapaði for­seta­kosn­ing­um fyr­ir. Lula tók við embætti 1. janú­ar.

Bol­son­aro flúði til Banda­ríkj­anna tveim­ur dög­um áður en Lula tók við for­seta­embætti Bras­il­íu. Hann snéri þó aft­ur til Bras­il­íu í lok mars.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert