Vopnahléið ekki virt í Súdan og matvælaaðstoð hætt

Dökkir reykmekkir hafa verið algeng sjón um helgina í Kartúm, …
Dökkir reykmekkir hafa verið algeng sjón um helgina í Kartúm, höfuðborg Súdan. AFP

Svo virðist sem um­samið vopna­hlé í Súd­an hafi ekki verið virt og nú hafa Sam­einuðu þjóðirn­ar til­kynnt að hætt verði að veita mat­vælaaðstoð á svæðinu. Heyra mátti í skot­hríð nærri flug­vell­in­um í Kart­úm á milli klukk­an 16 og 19 að staðar­tíma, á þeim tíma sem vopna­hléð átti að standa yfir. 

Stríðandi fylk­ing­ar féllust á til­lög­ur Sam­einuðu þjóðanna um þriggja klukku­stunda langt vopna­hlé til þess að koma við brýnni neyðaraðstoð á svæðinu í dag. 

Átök hafa staðið yfir frá morgni laug­ar­dags

Átök­in standa milli Súd­ans­hers og upp­reisn­ar­hers þar í landi en þau brut­ust út á laug­ar­dags­morg­un. 

Her Súd­ans er stjórnað af Abdel Fattah al-Bur­h­an en upp­reisn­ar­hern­um af hans næ­stráðanda Mohamed Hamd­an Daglo. Sam­an stóðu þeir að vald­arán­i 2021 og hafa stjórnað land­inu sam­an síðan þá. Kastaðist í kekki milli þeirra vegna fyr­ir­hugaðrar sam­ein­ing­ar herafl­ans.

Ríf­lega 50 manns hafa þurft að gjalda fyr­ir átök­in með lífi sínu um helg­ina. 

Mat­vælaaðstoð hætt

Sam­einuðu þjóðirn­ar hafa fallið frá öll­um áform­um um áfram­hald­andi mat­vælaaðstoð á svæðinu eft­ir að þrír starfs­menn á veg­um stofn­un­ar­inn­ar létu lífið. Flug­vél frá mat­vælaaðstoðardeild Sam­einuðu þjóðanna er auk þess illa far­inn eft­ir verk­efnið.

„Við get­um ekki sinnt þeim lífs­nauðsyn­legu verk­efn­um sem við vilj­um sinna ef það er ekki hægt að tryggja ör­yggi starfs­fólks okk­ar,“ er haft eft­ir Cin­dy McCain for­stöðumanni mat­vælaaðstoðar hjá Sam­einuðu þjóðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert