Yfir 400 drepnir og 3.500 særst

Reykur skammt frá svæði flugvallarins í Kartúm, höfuðborg Súdans, fyrr …
Reykur skammt frá svæði flugvallarins í Kartúm, höfuðborg Súdans, fyrr í vikunni. Mikil átök hafa átt sér stað í landinu. AFP

Meira en 400 manns hafa verið drepn­ir og yfir 3.500 særst í átök­un­um sem hafa staðið yfir í Súd­an að und­an­förnu, að sögn Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar.

Að minnsta kosti níu börn eru á meðal lát­inna og yfir 50 hafa særst, sagði talskona stofn­un­ar­inn­ar, Marga­ret Harris, á blaðamanna­fundi.

Harðir bar­dag­ar hafa geisað á milli Súd­ans­hers og upp­reisn­ar­hers­ins RSF eft­ir að ekki tókst að halda um­samið vopna­hlé í land­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert