Undirbúa síðasta flugið

Bretar um borð í flugvél breska flughersins á leið frá …
Bretar um borð í flugvél breska flughersins á leið frá Súdan á miðvikudaginn. AFP/Varnarmálaráðuneyti Bretlands.

Bret­ar und­ir­búa nú síðasta flugið sem flytja á breska rík­is­borg­ara frá Súd­an. Þegar hafa 1.888 Bret­ar verið flutt­ir í 21 flug­ferð frá Súd­an síðan á þriðju­dag.

Harðir bar­dag­ar hafa geisað á milli Súd­ans­hers og upp­reisn­ar­hers­ins RSF í höfuðborg­inni Kart­úm síðan 15. apríl. Skriðdrek­ar fara um göt­ur borg­ar­inn­ar og hafa her­irn­ir einnig beitt árás­arþotum á borg­ina. Yfir 400 manns hafa týnt líf­inu í átök­un­um og þúsund­ir slasast. 

Ætt­ingj­ar skild­ir eft­ir

Sum­ir þeirra Breta sem verið er að flytja frá átaka­svæðinu segja að bresk stjórn­völd hafi neytt þá til þess að skilja ætt­ingja sína eft­ir, sam­kvæmt heim­ild­um AFP frétta­stof­unn­ar.

Kon­ung­legi flug­her­inn í Bretlandi (RAF) byrjaði á þriðju­dag­inn að flytja fyrst þá sem eru með breskt vega­bréf og ná­skylda ætt­ingja sem búa í Bretlandi.

Eft­ir harða gagn­rýni heima fyr­ir ákvað rík­is­stjórn­in í Bretlandi einnig að leyfa súdönsk­um lækn­um sem vinna í breska heil­brigðis­kerf­inu að fá far frá Afr­íku­rík­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert