Þyrla með hjálpargögn til Súdans

Bátur með flóttafólk leggur af stað frá Port Sudan en …
Bátur með flóttafólk leggur af stað frá Port Sudan en björgunarskip frá Sádi-Arabíu bíður fólksins úti á sjó. AFP/Fayez Nureldine

Fyrsta rauðakrossþyrl­an lenti í Súd­an í dag með hjálp­ar­gögn en vær­ing­ar hers lands­ins og upp­reisn­ar­hers­ins RSF fara nú inn í sína þriðju viku í höfuðborg lands­ins, Kart­úm. Hafa á sjötta hundrað manns týnt lífi sínu í átök­un­um.

„Þarna er um að ræða átta tonn af hjálp­ar­gögn­um, meðal ann­ars skurðstofu­búnað til aðstoðar sjúkra­hús­um lands­ins og sjálf­boðaliðum Rauða hálf­mán­ans,“ seg­ir í til­kynn­ingu Alþjóða Rauða kross­ins.

Inn­an við fimmt­ung­ur sjúkra­húsa starf­hæf­ur

Lík hafa legið á göt­um höfuðborg­ar­inn­ar síðan átök­in brut­ust út og seg­ir Pat­rick Youss­ef, um­dæm­is­stjóri Alþjóða Rauða kross­ins í Afr­íku, að sjálf­boðaliðar á veg­um sam­tak­anna vinni nú að því að fjar­lægja þau eft­ir því sem hægt sé.

Sádiarabískt herskip kemur með flóttafólk til Jeddah.
Sádi­ar­ab­ískt her­skip kem­ur með flótta­fólk til Jeddah. AFP/​Fayez Nureldine

Inn­an við fimmt­ung­ur sjúkra­húsa Kart­úm er starf­hæf­ur að sögn Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar WHO en mörg hús­anna hafa lask­ast í sprengju­árás­um. Þyrlu­send­ing­in sem kom á vett­vang í dag kem­ur frá Amm­an í Jórdan­íu og lenti þyrl­an í borg­inni Port Su­dan í aust­ur­hluta lands­ins, á eina staðnum í land­inu sem óhætt er að nota til slíkra flutn­inga að sögn Youss­efs.

Greindi hann enn frem­ur frá því að gögn­in sem þyrl­an flutti dygðu til að koma 1.500 sjúk­ling­um í stöðugt ástand auk þess sem von­ast væri til að hægt væri að tryggja ör­yggi frek­ari send­inga til Kart­úm og Darfúr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert