G7-ríkin fagna tjónaskrá Evrópuráðsins

Leiðtogar G7-ríkjana tóku sér tíma fyrir myndatöku í dag.
Leiðtogar G7-ríkjana tóku sér tíma fyrir myndatöku í dag. AFP/Stefan Rousseau

G7-rík­in segj­ast fagna stofn­un tjóna­skrá­ar Evr­ópuráðsins. Tjóna­skrá­in var stofn­sett í Hörpu á miðviku­dag­inn. 

Þjóðarleiðtog­ar G7-ríkj­anna, sjö helstu iðnríkja heims­ins, funda nú í Hiros­hima í Jap­an. Í dag gáfu þeir út sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu varðandi Úkraínu­stríðið. 

Þar seg­ir meðal ann­ars að rík­in ætli sér að halda áfram að vinna að því að Rúss­ar borgi fyr­ir lang­tíma­upp­bygg­ingu í Úkraínu sök­um inn­rás­ar Rússa.

„Í þessu sam­hengi fögn­um við stofn­un Evr­ópuráðsins á tjóna­skrá eyðilegg­ing­ar í kjöl­far inn­rás­ar Rússa í Úkraínu, til að koma til móts við beiðni alls­herj­arþings Sam­einuðu þjóðanna,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

G7-rík­in til­kynnt­um um nýj­ar refsiaðgerðir gegn Rúss­um í dag. Meðal ann­ars er þeim beint gegn dem­antaviðskipt­um Rússa sem tengj­ast inn­rás þeirra í Úkraínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert