Ræddi við Katrínu um enda­lok hval­veiða

Marija Pejcinovic Buric, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópuráðsins (til vinstri), Leo Varadkar, forsætisráðherra …
Marija Pejcinovic Buric, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópuráðsins (til vinstri), Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á leiðtogafundi Evrópuráðsins. AFP/Halldór Kolbeins

For­sæt­is­ráðherra Írlands seg­ist hafa átt gott sam­tal við Katrínu Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra um stöðu hval­veiða á Íslandi er hann var stadd­ur hér­lend­is vegna leiðtoga­fund­ar Evr­ópuráðsins.

Á vef hins írska In­depend­ent seg­ist for­sæt­is­ráðherr­ann Leo Vara­dk­ar vilja að hval­veiðum verði hætt. Hann og Katrín hafi átt góðar sam­ræður um málið en born­ar hafi verið upp niður­stöður rann­sókn­ar MAST um lang­dregna af­líf­un hvala við Íslands­strend­ur.

„Örlítið eins og Írar þá lík­ar Íslend­ing­um ekki við það að vera skipað fyr­ir verk­um af er­lend­um stjórn­völd­um. Svo ég skammaðist ekki. En ég vissu­lega bar upp vanda­málið og hún vildi glöð ræða það,“ er haft eft­ir Vara­dk­ar.

Þá hafi hann sagt írsk höf vera eins kon­ar griðastaði fyr­ir hvali og í kjöl­farið hafi dýr­un­um fjölgað þar, sem sé mik­il­vægt fyr­ir líffjöl­breytni og ferðamannaiðnaðinn.

„Ég vil að hval­veiðum verði hætt á heimsvísu. En við skilj­um aug­ljós­lega að mis­mun­andi ríki taka sín­ar eig­in ákv­arðanir.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert