McCann leitað í uppistöðulóni

Lögreglan í Portúgal leitar nú við stíflu, skammt frá hótelinu …
Lögreglan í Portúgal leitar nú við stíflu, skammt frá hótelinu er breska stúlkan Madelaine McCann hvarf frá í maímánuði fyrir 16 árum, vorið 2007. AFP/Filipe Amorim

Þýska lög­regl­an stjórn­ar nú leit­araðgerð við uppistöðulón Ara­de-stífl­unn­ar í Suður-Portúgal, skammt frá Praia da Luz þar sem breska korna­barnið Madeleine McCann hvarf spor­laust fyr­ir 16 árum.

Sá sem nú ligg­ur helst und­ir grun portú­gölsku lög­regl­unn­ar um að tengj­ast hvarfi McCann, Þjóðverj­inn Christian Brückner, birt­ist á upp­töku ör­ygg­is­mynda­vél­ar skammt frá hót­el­her­berg­inu þar sem síðast var vitað um McCann dag­inn sem hún hvarf, 3. maí 2007.

Hans Christian Wolters, rík­is­sak­sókn­ari í Þýskalandi, tjáði þýsku sjón­varps­stöðinni NDR í dag að rann­sak­end­ur hefðu ástæðu til að ætla að finna mætti gögn er tengd­ust hvarfi stúlk­unn­ar við Ara­de-stífl­una.

Leita ekki af því bara

Við aðra þýska sjón­varps­stöð, RTL, sagði Wolters hins veg­ar að ekki væri unnt að slá neinu föstu. „Þetta bygg­ist ekki á ábend­ing­um frá grunaða [...] en þið getið vel gert ykk­ur í hug­ar­lund að við för­um ekki að leita ein­hvers staðar í Portúgal af því bara, við hljót­um að hafa ein­hverja ástæðu,“ sagði sak­sókn­ar­inn.

Ástæðuna kvað hann vissu­lega vera til staðar. „Við höf­um ástæðu, en ég bið ykk­ur að sýna því skiln­ing að ég get ekki, rann­sókn­ar­inn­ar vegna, út­skýrt hana fyr­ir ykk­ur hér og nú.“

Um há­deg­is­bil í dag, þriðju­dag, voru rúm­lega tveir tug­ir lög­regluþjóna við leit í ná­grenni stífl­unn­ar en portú­galska lög­regl­an verst allra frétta. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem leitað er á þessu svæði, árið 2008 leituðu kafar­ar í uppistöðulóni stífl­unn­ar í kjöl­far þess er portú­galska lög­fræðingn­um Marcos Aragao Cor­reia bár­ust ábend­ing­ar úr portú­gölsk­um und­ir­heim­um um að líki bresku stúlk­unn­ar hefði verið sökkt þar á sín­um tíma. Sú leit reynd­ist ár­ang­urs­laus.

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert