Leitinni að Madeleine lokið

Leitinni að Madeleine McCann í Portúgal er lokið.
Leitinni að Madeleine McCann í Portúgal er lokið. AFP/Filipe Amorim

Leit­ar­menn á veg­um sak­sókn­ara í Þýskalandi hafa lokið leit við uppistöðulón í suður­hluta Portúgal. Leitað var að Madeleine McCann, breskri stúlku, sem hvarf á Al­gar­ve árið 2007. 

Leitar­flokk­ur­inn tók niður tjöld sín síðdeg­is í dag. Frétta­stofa Reu­ters grein­ir frá því að leit­in, sem stóð yfir í þrjá daga, hafa verið tíðinda­lít­il. Þó hafi nokkr­ir pok­ar af jarðvegi verið flutt­ir í burtu til rann­sókn­ar. 

Þýsk stjórn­völd hafa nafn­greint mann sem sæt­ir rann­sókn vegna hvarfs McCann. Heit­ir hann Christian Bru­eckner og hafði áður verið sak­felld­ur fyr­ir barn­aníð og fíkni­efna­sölu. Er hann nú í fang­elsi í Þýskalandi, sak­felld­ur fyr­ir að nauðga 72 ára gam­alli konu á Al­gar­ve. 

Hef­ur hann neitað að vita nokkuð um mál McCann.

Alls hafa um 50 lög­regluþjón­ar og portú­galsk­ir slökkviliðsmenn tekið þátt í leit­inni.

Portú­galsk­ir fjöl­miðlar sögðu í gær að tek­in hefðu verið jarðsýni á svæðinu, auk þess sem leif­ar af fatnaði fund­ust. Enn hef­ur þó ekk­ert fund­ist sem teng­ist mál­inu.

Lög­regl­an leitaði á sama svæði árið 2008 og fundu kaf­ar­ar þá ein­göngu dýra­leif­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert