Seinni umferð forsetakosninga í Tyrklandi

Kjörstaðir hafa verið opnaðir í Tyrklandi.
Kjörstaðir hafa verið opnaðir í Tyrklandi. AFP/ Adem Altan

Búið er að opna kjörstaði í Tyrklandi þar sem fer fram seinni um­ferð for­seta­kosn­inga í land­inu í dag. Í fyrri um­ferðinni, sem fór fram þann 14. maí síðastliðinn, náðu hvorki Recep Tayyup Er­dog­an sitj­andi for­seti, né at­kvæðamesti mófram­bjóðandi hans, Kemal Kilicd­aroglu, til­skildu lá­m­arki at­kvæða eða 50 pró­sent. Því þarf að kjósa aft­ur.

Litlu munaði þó í fyrri um­ferðinni að Er­dog­an næði þessu lág­marki, en hann hlaut 49,5 pró­sent at­kvæða á meðan Kilicd­aroglu hlaut 44,9 pró­sent at­kvæða.

Sin­an Ogan, fram­bjóðand­inn sem lenti í þriðja sæti í kosn­ing­un­um fyr­ir tveim­ur vik­um, hef­ur veitt Er­dog­an, stuðning sinn, en lík­legt þykir að stuðning­ur hans muni tryggja Er­dog­an end­ur­kjör.

Hér má sjá kjörseðilinn.
Hér má sjá kjör­seðil­inn. AFP/​Ozan Kose

Er­dog­an hef­ur gegnt embætti for­seta Tyrk­lands frá ár­inu 2014 en þar áður var hann for­sæt­is­ráðherra lands­ins. Nái hann kjöri í dag trygg­ir það hon­um for­seta­stól­inn til árs­ins 2028.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert