Rannsaka hluti í tengslum við hvarfið á McCann

Vélar, leitarhundar og hakar voru notaðir við leitina sem stóð …
Vélar, leitarhundar og hakar voru notaðir við leitina sem stóð yfir í þrjá daga. AFP/Filipe Amorim

Þýska lög­regl­an rann­sak­ar nú nokkra hluti í tengsl­um við hvarfið á bresku stúlk­unni Madeleine McCann. 

BBC grein­ir frá því að of snemmt sé til að staðfesta hvort mun­irn­ir teng­ist McCann sem hvarf á Al­gar­ve árið 2007, þriggja ára göm­ul. 

Í síðustu viku stóð sak­sókn­ari á Þýskalandi að leit­araðgerð við uppistöðulón í suður­hluta Portúgal.

Þýsk stjórn­völd hafa nafn­greint mann sem sæt­ir rann­sókn vegna hvarfs McCann. Christian Bru­eckner er 46 ára gam­all Þjóðverji sem hafði áður verið sak­felld­ur fyr­ir barn­aníð og fíkni­efna­sölu. Hann sit­ur nú í fang­elsi í Þýskalandi, sak­felld­ur fyr­ir að nauðga 72 ára gam­alli konu á Al­gar­ve. Bru­eckner hef­ur neitað að vita nokkuð um mál McCann.

Uppistöðulónið er 31 kílómetra frá hótelinu sem McCann hvarf frá …
Uppistöðulónið er 31 kíló­metra frá hót­el­inu sem McCann hvarf frá í Praia da Luz. AFP/​Fil­ipe Amorim

Framúrsk­ar­andi sam­starf lög­reglu

Christian Wolter sak­sókn­ari sagði að hlut­irn­ir sem fund­ust í Portúgal yrðu rann­sakaðir á næstu vik­um. 

„Við þökk­um öll­um þeim sem tóku þátt í leit­inni. Sam­starf portú­gölsku, bresku og þýsku lög­regl­unn­ar hef­ur verið framúrsk­ar­andi og mjög upp­byggi­legt,“ sagði Wolter. 

Vél­ar, leit­ar­hund­ar og hak­ar voru notaðir við leit­ina sem stóð yfir í þrjá daga.

Uppistöðulónið er 31 kíló­metra frá hót­el­inu sem McCann hvarf frá í Praia da Luz. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert