JP Morgan Chase nær sátt í Epstein-máli

Jeffrey Epstein.
Jeffrey Epstein. AFP

JP Morg­an Chase hef­ur náð sátt í meg­in­at­riðum í hóp­mál­sókn sem fórn­ar­lömb Jef­frey Ep­stein höfðuðu gegn bank­an­um.

„Báðir aðilar telja að þetta sam­komu­lag þjóni öll­um vel sem að mál­inu koma, sér­stak­lega fórn­ar­lömb­um hrylli­legr­ar mis­notk­un­ar Ep­steins,“ sagði í sam­eig­in­legri yf­ir­lýs­ingu.

Eng­ar frek­ari upp­lýs­ing­ar um upp­hæðir voru gefn­ar í yf­ir­lýs­ing­unni, þar sem kom fram að dóm­stóll þurfi að samþykkja sátt­ina sem náðist.

JPMorgan Chase í New York.
JP­Morg­an Chase í New York. AFP/​Michael M. Santiago

Deutsche Bank náði sams kon­ar sátt í maí, en auðjöf­ur­inn Ep­stein lést í fang­elsi árið 2019.

Báðir bank­arn­ir stunduðu viðskipti við Ep­stein á sín­um tíma.

„Þetta hef­ur tekið lang­an tíma, of lang­an tíma, en dag­ur­inn í dag er frá­bær fyr­ir fórn­ar­lömb Jef­frey Ep­stein og frá­bær dag­ur fyr­ir rétt­lætið,“ sagði Dav­id Boies hjá lög­fræðistof­unni Boies Schiller og Flexner sem starfaði fyr­ir hönd fórn­ar­lamba Ep­steins í mála­rekstr­in­um gegn báðum bönk­un­um.

JP Morg­an Chase sagðist sjá eft­ir sam­skipt­um sín­um við Ep­stein. „Við skilj­um það öll núna að hegðun Ep­stein var hrylli­leg,“ sagði talsmaður bank­ans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert