Níu ára dómur fyrir að halda konu sem þræl

Jasítar kveikja á kertum í Írak. Myndin er úr safni.
Jasítar kveikja á kertum í Írak. Myndin er úr safni. AFP

Þýsk kona á fer­tugs­aldri, sem var í hryðju­verka­sam­tök­un­um Ríki íslams, hef­ur verið dæmd í níu ára fang­elsi fyr­ir að halda Jasíta-konu sem þræl í þrjú ár.

Jasít­ar (e. Yazidis) eru minni­hluta­hóp­ur sem hef­ur verið of­sótt­ur af hryðju­verka­sam­tök­un­um.

Kon­an, sem er kölluð Nadine K., var meðal ann­ars sak­felld fyr­ir man­sal, glæpi gegn mann­kyni og aðild að hryðju­verka­sam­tök­um, að því er BBC grein­ir frá.

Henni var einnig gefið að sök að hafa hvatt eig­in­mann sinn til að beita kon­una of­beldi, meðal ann­ars kyn­ferðisof­beldi.

Var um tví­tugt

Ríki íslams réðst inn á landsvæði Jasíta-fólks­ins í norður­hluta Íraks árið 2014. Marg­ir voru drepn­ir og um sjö þúsund kon­ur og stúlk­ur voru tekn­ar og hneppt­ar í þræl­dóm.

Á meðal þeirra var unga kon­an, Naveen Al, sem þá var um tví­tugt. Nadine K. og eig­inmaður henn­ar hnepptu hana í þræl­dóm árið 2016.

Naveen Al bar vitni í rétt­ar­höld­un­um yfir Nadine K. í fe­brú­ar og var viðstödd dóms­upp­kvaðning­una í gær.

Hún greindi frá því í vitali við fréttamiðil­inn Sky News að hún hefði verið mis­notuð og neydd til að sinna heim­il­is­störf­um fyr­ir hjón­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert