Fjölskyldur hinna látnu lýsa djúpri sorg

Allir fimm mennirnir um borð í kafbátnum eru taldir af.
Allir fimm mennirnir um borð í kafbátnum eru taldir af. AFP/Joël Saget

Fjölskylda feðganna Shahzada og Suleman Dawood, sem fórust í Titan kafbátnum, lýstu djúpum harmi yfr missi þeirra. Allir fimm mennirnir er voru um borð í bátnum eru taldir af, en talið er að hann hafi fallið saman vegna þrýstings.

„Það er með djúpum harmi sem við tilkynnum andlát Shahzada og Suleman Dawood,“ sagði í yfirlýsingu fjölskyldunnar, undirritaða af Hussain og Kulsum Dawood, foreldrum Shahzada.

„Við vottum fjölskyldum hinna farþeganna á Titan kafbátnum innilegar samúðarkveðjur. Við erum sannarlega þakklát öllum þeim sem tóku þátt í björgunaraðgerðunum.“

Shahzada var frá Pakistan búsettur í Bretlandi ásamt eiginkonu sinni, Christine, Suleman, og dóttur þeirra, Alinu. Suleman var aðeins 19 ára gamall.

Var að gera það sem hann elskaði

Fjölskyldan lýsti Shahzada sem góðum föður með brennandi áhuga á ljósmyndun og að skoða mismunandi heimkynni. Þá hefði Suleman verið mikið fyrir vísindaskáldskap og að læra nýja hluti.

Forstjóri OceanGate, Stockt­on Rush, var einn fimm mannanna í kafbátnum. Auk hans og feðganna voru Hamish Harding og Paul-Henri Nargeolet.

Fjölskylda Harding heiðraði minningu hans og lýsti honum sem ástríðufullum landkönnuði, eiginmanni og föður, en Harding átti tvo syni.

„Það sem hann áorkaði á lífsleiðinni var sannarlega merkilegt og ef við getum haft einhverja huggun í þessum harmleik þá er það að við misstum hann við að gera það sem hann elskaði,“ sagði fjölskyldan í yfirlýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert