Ása bað fréttamenn um að láta sig í friði

Fréttamenn biðu við heimilið þegar Ása sneri aftur.
Fréttamenn biðu við heimilið þegar Ása sneri aftur. AFP/Yuki Iwamura

Ása Guðbjörg Ell­erup, eig­in­kona Rex Heu­er­manns sem grunaður er um að hafa orðið fjór­um kon­um að bana í Banda­ríkj­un­um, sást fyr­ir utan heim­ili þeirra á Long Is­land í gær.

Frétta­menn biðu við heim­ilið þegar Ása sneri aft­ur eft­ir að rann­sókn lög­reglu lauk í hús­inu og á lóðinni. New York Post birti mynd­skeið þar sem Ása sést öskra á frétta­menn og gefa þeim fing­ur­inn er þeir gáfu sig á tal við hana.

„Gerið það, látið mig vera,“ sagði Ása við frétta­menn er hún var spurð hvort hún hygðist dvelja í hús­inu.

„Ég er reiður“

Heu­er­mann hef­ur verið ákærður fyr­ir morð á þrem­ur kon­um og ligg­ur und­ir grun um að hafa framið eitt til viðbót­ar. Lík kvenn­anna fund­ust við Gil­go-strönd fyr­ir meira en tíu árum og hef­ur mál þeirra verið óupp­lýst síðan.

Börn Ásu, Victoria Heu­er­mann og Christoph­er Sher­i­dan, voru einnig við heim­ilið í gær. „Ég er reiður,“ sagði Sher­i­dan þegar hann gekk fram hjá blaðamönn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert