Leiðtogi Ríkis íslams sagður látinn

Fáni Ríkis íslams.
Fáni Ríkis íslams. AFP

Hryðju­verka­sam­tök­in Ríki íslams hafa til­kynnt dauða leiðtoga síns, Abu al-Hus­seini al-Qurashi. Leiðtog­inn á að hafa látið lífið í átök­um í Norðvest­ur-Sýr­landi.

AFP grein­ir frá því að leiðtog­inn hafi verið drep­inn eft­ir bein átök við hóp jíhadista að nafni Hayat Tahrir al-Sham í Idlib-héraði. Fregn­ir þess­ar eiga að hafa borist í gegn­um skila­boð sem hafi verið tek­in upp og birt á Tel­egram. Ekki kem­ur fram hvenær leiðtog­inn var drep­inn.

Þá liggi nýr leiðtogi fyr­ir. Sá sé Abi Hafs­an al-Hashimi al-Qurashi.

Í nóv­em­ber árið 2022 var fyrri leiðtogi íslamska rík­is­ins, Abu Has­an al-Hashimi al-Qurashi, ráðinn af dög­um og for­veri hans í fe­brú­ar sama ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert