Tate-bræðrum sleppt úr stofufangelsi

Andrew og Tristan Tate segja engan fót fyrir ásökunum lögreglu …
Andrew og Tristan Tate segja engan fót fyrir ásökunum lögreglu í Rúmeníu. AFP/Daniel Mihailescu

Um­deilda áhrifa­vald­in­um Andrew Tate hef­ur verið sleppt úr stofufang­elsi í Rúm­en­íu en hann hef­ur verið ákærður fyr­ir man­sal og nauðgun. Bróður hans Trist­an Tate var einnig sleppt.

Þrátt fyr­ir að bræðurn­ir séu ekki leng­ur í stofufang­elsi eru þeir ekki frjáls­ir ferða sinna en þeir mega ferðast um Búkarest og svæðið í kring­um heim­ili sitt skammt frá borg­inni.

BBC grein­ir frá.

Þar að auki kem­ur fram að þeim sé bannað að hafa sam­band við aðra sak­born­inga í mál­inu, vitni og meint fórn­ar­lömb sín. Þá þurfi þeir einnig að svara kalli lög­reglu þegar það berst ásamt fleiru en brjóti þeir regl­urn­ar verði þeir aft­ur sett­ir í stofufang­elsi.

Bræðurn­ir voru hand­tekn­ir í Rúm­en­íu þann 30. des­em­ber og hafa síðan neitað sök í mál­inu.

Andrew Tate er vel þekkt­ur á sam­fé­lags­miðlum og hef­ur verið bannaður á þeim mörg­um en hann hef­ur gjarn­an deilt skoðunum sem ein­kenn­ast af kven­h­atri og eitraðri karl­mennsku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert