Hundruð þúsunda í hættu í Súdan

600,000 manns hafa leitað skjóls í borginni El Fasher, þar …
600,000 manns hafa leitað skjóls í borginni El Fasher, þar sem átök brutust út á fimmtudag. AFP

Átök­in milli stjórn­ar­hers Súd­ans og RSF-sveit­anna þar í landi hafa nú breiðst út til borga í suður­hluta Súd­ans og gætu hundruð þúsunda sem nú þegar hafa flúið átaka­svæðið Darf­ur þurft að leita skjóls að nýju. AFP grein­ir frá. 

600,000 leitað skjóls

Á fimmtu­dag brut­ust út blóðug átök í El Fasher, höfuðborg Norður-Darf­ur­héraðs, sem hef­ur und­an­farna tvo mánuði verið að mestu laus við spreng­ing­ar, rán, nauðgan­ir og af­tök­ur sem átt hafa sér stað í öðrum hlut­um Darf­ur. 

600,000 manns hafa að leitað sér skjóls í El Fasher í kjöl­far átak­anna og hafa ýmis alþjóðleg mann­rétt­inda­sam­tök lýst yfir veru­leg­um áhyggj­um af ástand­inu. Þá hef­ur verið greint frá fjölda­morðum og árás­um á óbreytta borg­ara, sem drif­in eru áfram af þjóðerniserj­um. 

Alþjóðaglæpa­dóm­stóll­inn rann­sak­ar nú meinta stríðsglæpi RSF sveit­anna, en svæðið hef­ur verið þunga­miðja mann­skæðra bar­daga síðan 2003 þegar þáver­andi rík­is­stjórn leysti hinn al­ræmda Janjaweed, for­vera RSF sveit­ar­inn­ar, úr haldi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert