Umdeilt athæfi Íslandsvinkonu þykir ekki ámælisvert

Jarðvísindamenn segja ekkert stórmál að Martha Stewart hafi tekið mola …
Jarðvísindamenn segja ekkert stórmál að Martha Stewart hafi tekið mola úr ísjaka og sett í kokteilglas sitt. Skjáskot/Instagram

Banda­rísk­ur jarðvís­indamaður gef­ur lítið fyr­ir þá gagn­rýni sem sjón­varps­stjarn­an Martha Stew­art hef­ur sætt fyr­ir að setja mola úr ís­jaka í drykk­inn sinn. Seg­ir hann ekki skipta máli hvort jök­ull­inn bráðni í sjón­um eða í glasi sjón­varps­stjörn­unn­ar.

Washingt­on Post leitaði álits hjá Eric Rignot sem er pró­fess­or við Kali­forn­íu­há­skóla í Irvine.

At­hygli vakti í vik­unni að Stew­art, sem ný­lega hafði verið í heim­sókn á Íslandi, setti brot úr Græn­lands­jökli í kokteil­glasið sitt. Birti hún mynd af því á In­sta­gram þar sem tæp­ar tvær millj­ón­ir fylgja henni.

„Það er ekki eins og hún hafi farið upp á jök­ul og tekið brot úr hon­um. Ísjak­ar fljóta nú þegar í sjón­um og bráðna hægt og ró­lega. Það skipt­ir ekki máli hvort þeir bráðni í sjón­um eða glasi,“ sagði Rignot.

Stew­art tók mol­ann vissu­lega upp úr sjón­um og setti í glas sitt og þótti fólki það van­v­irðing við nátt­úr­una. „Hlýn­un jarðar og bráðnun jökl­anna, en við þurf­um ís­jaka í kokteila?“ spurði einn fylgj­andi henn­ar á In­sta­gram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka