Brand sakaður um kynferðisbrot

Russell Brand.
Russell Brand. AFP/Andrew Cowie

Grín­ist­inn og leik­ar­inn Rus­sell Brand hef­ur verið sakaður um að beita kyn­ferðiso­beldi og til­finn­inga­legu of­beldi um sjö á ára skeið þegar hann var á há­tindi fer­ils síns. 

Fjór­ar kon­ur saka Brand um að hafa brotið á sér á ár­un­um 2006 til 2013. 

Greint var frá meint­um brot­um í Sunday Times og Chann­el 4 Dispatches í dag. 

Brand hef­ur neitað ásök­un­um og sagt að hann hafi fengið samþykki í öll­um sín­um sam­bönd­um. 

Á þeim tíma sem kon­urn­ar segja að brot­in hafi átt sér stað vann hann hjá BBC Radio 2 og Chann­el 4. Fór hann einnig með hlut­verk í Hollywood-kvik­mynd­um á þess­um tíma. 

Sunday Times greindi frá í dag en heim­ild­ar­mynd­in verður sýnd í kvöld á Chann­el 4. 

Brand neitaði ásök­un­um í mynd­bandi sem hann birti á X, áður Twitter, í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert