Faðir Amini handtekinn

Amini lést fyrir ári síðan.
Amini lést fyrir ári síðan. AFP/Kenzo Tribouillard

Íransk­ar ör­ygg­is­sveit­ir hand­tóku föður Mös­hu Am­ini fyr­ir utan heim­ili hans í dag. Hann hef­ur þó verið lát­inn laus. Reu­ters grein­ir frá.

Í dag er eitt ár síðan hin 22 ára Masha Am­ini lést í kjöl­far hand­töku sem fram­kvæmd var vegna brots henn­ar á ströng­um regl­um Írana um notk­un hijab-slæðu. Am­ini var í haldi lög­reglu í um tvær klukku­stund­ir, en var lögð inn á spít­ala í kjöl­farið þar sem hún lést vegna höfuðáverka.

Í kjöl­far and­láts henn­ar brut­ust út hörð mót­mæli gegn klerka­stjórn­inni. Stjórn­inni var harðlega mót­mælt í Íran, en einnig út um all­an heim.

Konur um allan heim hafa mótmælt írönskum stjórnvöldum.
Kon­ur um all­an heim hafa mót­mælt ír­önsk­um stjórn­völd­um. AFP/​Yuki Iwamura

Um tíma var gert ótíma­bundið hlé á eft­ir­litsaðgerðum siðferðis­lög­regl­unn­ar, en hlut­verk henn­ar er að tryggja að kon­ur hylji hár sitt og lík­ama lög­um sam­kvæmt. Siðferðis­lög­regl­an hóf eft­ir­lit sitt á ný í sum­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert