Biðjast afsökunar í máli Madeleine McCann

Kate og Gerry McCann ræða við fjölmiðla árið 2014.
Kate og Gerry McCann ræða við fjölmiðla árið 2014. AFP/Patricia De Melo Moreira

Bresk­ir for­eldr­ar Madeleine McCann, sem hvarf spor­laust fyr­ir um 16 árum á Al­gar­ve í Portúgal þá þriggja ára göm­ul, hafa fengið af­sök­un­ar­beiðni frá lög­reglu í Portúgal.

Sendi­nefnd hátt­settra yf­ir­manna lög­reglu í Portúgal ferðaðist til Lund­úna fyrr á ár­inu og baðst af­sök­un­ar á því hvernig rann­sókn hvarfs dótt­ur þeirra var háttað og á fram­komu lög­reglu í Portúgal við fjöl­skyldu McCann. BBC grein­ir frá.

Með rétt­ar­stöðu grunaðra

Haustið 2007, um fjór­um mánuðum eft­ir hvarf Madeleine, fengu for­eldr­ar henn­ar, Kate og Gerry, rétt­ar­stöðu grunaðra. Bæði voru þau yf­ir­heyrð af rann­sókn­ar­lög­reglu sem taldi þau hafa sviðsett mann­rán, drepið dótt­ur sína og falið líkið. Móðir Madeleine sagði að henni hafi verið boðið að játa á sig morðið á dótt­ur sinni gegn því að fá mild­ari dóm. Stöðu hjón­anna sem grunaðra var aflétt árið 2008 en þau lágu samt sem áður und­ir grun til margra ára.

Portú­galska lög­regl­an seg­ir nú að rann­sókn­in hafi í upp­hafi ekki verið fram­kvæmd með rétt­um hætti og að staða for­eldra Madeleine sem út­lend­inga í óþekktu um­hverfi hafi ekki verið virt.

Brückner fyr­ir dóm í fe­brú­ar á næsta ári

Lög­regla í Portúgal hef­ur veitt þýsk­um yf­ir­völd­um stuðning, sem telja að hinn 46 ára gamli Þjóðverji Christian Brückner hafi myrt barnið.

Hans Christian Wolters, sak­sókn­ari í Þýskalandi, fagnaði af­sök­un­ar­beiðni lög­regl­unn­ar í Portúgal.

„Þetta er já­kvætt og sýn­ir að í Portúgal er ein­hver þróun í McCann-mál­inu.“

Sagði hann að lið sitt vonaðist til að ljúka fimm ára rann­sókn sinni á Brückner á næsta ári. Brückner bjó ná­lægt Praia da Luz dval­arstaðnum þegar McCann-fjöl­skyld­an var í fríi þar og varði tíma á svæðinu á milli ár­anna 2000 og 2017. Hann var form­lega grunaður af portú­gölsk­um sak­sókn­ara árið 2022.

Fyrr á ár­inu var þriggja daga leit í uppistöðulóni í Portúgal á veg­um þýskra yf­ir­valda þar sem leitað var að sönn­un­ar­gögn­um til að tengja hvarf barns­ins við Brückner.

„Við telj­um að hann hafi átt þátt í hvarfi Madeleine McCann og við telj­um að hann hafi myrt hana,“ sagði Wolters.

Brückner afplán­ar nú sjö ára fang­elsi í Þýskalandi fyr­ir eit­ur­lyfja­smygl og nauðgun á sama svæði og Madeleine hvarf.

Hann hef­ur þegar verið ákærður fyr­ir þrjár nauðgan­ir til viðbót­ar, kyn­ferðis­brot gegn barni og kyn­ferðisof­beldi. Brot­in fimm eru tal­in hafa verið fram­in á Al­gar­ve í Portúgal. Wolters staðfesti þá að réttað yrði í mál­un­um í fe­brú­ar árið 2024.

For­eldr­arn­ir ekki tjáð sig um af­sök­un­ar­beiðnina

Lögmaður Brückners, Friedrich Fulscher, sagði að skjól­stæðing­ur sinn nýtti þagn­ar­rétt sinn.

„Við þekkj­um inni­hald skjal­anna og telj­um ákær­urn­ar all­ar byggðar á óstöðugum grunni,“ sagði Fulscher.

Kate og Gerry McCann hafa ekki tjáð sig um af­sök­un­ar­beiðni portú­gölsku lög­regl­unn­ar. Þau sögðu Madeleine enn vera saknað mjög og að þau biðu nýrra upp­lýs­inga í mál­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert