Ása skrifar undir gerð heimildarmyndar

Ása Ellerup og börnin hennar Victoria og Christoper.
Ása Ellerup og börnin hennar Victoria og Christoper. Ljósmynd/Gofundme

Ása Guðbjörg Ell­erup og börn henn­ar tvö hafa skrifað und­ir samn­ing við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Peacock/​NBC um gerð heim­ild­ar­mynd­ar um líf þeirra eft­ir að heim­il­is­faðir­inn, Rex Heu­er­mann, var ákærður fyr­ir morð á þrem­ur kon­um.

Banda­ríska frétta­veit­an NewsNati­on grein­ir frá því að Ása og börn­in fái minnst eina millj­ón banda­rískra dala fyr­ir mynd­ina. Upp­hæðin sam­svar­ar rúm­um 141 millj­ón­um ís­lenskra króna.

Vill sjá sönn­un­ar­gögn­in

Heu­er­mann var hand­tek­inn í New York-borg í júlí. Eins og áður seg­ir er hann ákærður fyr­ir morð á þrem­ur kon­um. Kon­urn­ar hurfu árin 2009 og 2010. 

Stuttu eft­ir hand­tök­una sótti Ása um skilnað frá Heu­er­mann, en skilnaður­inn er ekki geng­inn í gegn.

Á miðviku­dag var mál Heu­er­mann tekið fyr­ir dóm. Ása mætti í rétt­ar­sal­inn ásamt lög­mönn­um sín­um og fram­leiðslu­mönn­um heim­ild­ar­mynd­ar­inn­ar.

Lögmaður Ásu seg­ir að hún muni mæta í rétt­ar­höld­in til að sjá sönn­un­ar­göngn ákæru­valds­ins með eig­in aug­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert