Réttað yfir Brueckner í febrúar

Fangelsið þar sem Christian Brueckner afplánar.
Fangelsið þar sem Christian Brueckner afplánar. AFP

Karl­maður sem ligg­ur und­ir grun í tengsl­um við hvarf Madeleine McCann, sem hvarf spor­laust á Al­gar­ve í Portúgal árið 2007, verður dreg­inn fyr­ir dóm í Þýskalandi í tengsl­um við fimm kyn­ferðis­brot.

Maður­inn sem um ræðir heit­ir Christian Bru­eckner, 46 ára gam­all Þjóðverji. Hann hef­ur áður verið sak­felld­ur fyr­ir barn­aníð og fíkni­efna­sölu.

Er Bru­eckner nú ákærður fyr­ir þrjár nauðgan­ir og tvö kyn­ferðis­brot gegn börn­um í Portúgal á ár­un­um 2000 til 2017. Brot­in sem hann er nú ákærður fyr­ir tengj­ast ekki hvarfi stúlk­unn­ar.

Eiga rétt­ar­höld­in að hefjast 16. fe­brú­ar.

Christian Brueckner er grunaður um að hafa átt aðild að …
Christian Bru­eckner er grunaður um að hafa átt aðild að hvarfi Madeleine McCann. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert